Hugmyndir að athyglisverðum skreytingum í forstofuna

Forstofan þarf ekki að vera stór til að vekja athygli – þú þarft bara skemmtilegt skraut. Hér eru sígild húsgögn og aukahlutir notuð á óvenjulegan hátt til að skapa glæsilega forstofu sem fær mann til að staldra við. Hún býður einnig upp á nægt hirslupláss til að skór og yfirhafnir taki hana ekki yfir. Útkoman er notalegt rými sem örvar skilningarvitin og líkist helst stofu – það vantar bara sófa!

A hallway with a rattan TOLKNING room divider flat against a wall at the end with a white MALM dressing table in front of it.
A rattan TOLKNING room divider against a wall with a MALM dressing table in front that has a STOCKHOLM table lamp on top.

Settu forstofuna í stofubúning

Gerðu forstofuna heimilislega og eftirminnilega svo gestir hafi eitthvað að tala um þegar þeir koma inn. Afmarkaðu rýmið og skapaðu stemningu með áberandi miðpunkti eins og TOLKNING skilrúmi úr reyr sem er komið fyrir upp við vegg og gefur rýminu lit, form og áferð.
Bættu við áberandi hliðarborði og stilltu upp lampa, nokkrum litlum LED kertum og blómavasa með glæsilegum greinum til að skapa persónulegt útlit sem geislar af hlýju og setur tóninn fyrir restina af heimilinu. Passaðu samt að þú fáir gestina til að halda áfram!

 


Reyr er einstök prýði

Vilt þú gefa forstofunni stemningu og stíl á augabragði? Veldu þá reyr! Fallega fléttaður og með óteljandi litbrigðum sem passa vel við önnur húsgögn og mýkja upp stílhreina áferðina á hvíta MALM snyrtiborðinu. Með því að blanda saman mismunandi vörum úr reyr, eins og skermum fyrir loftljós og veggskreytingum, skapar þú bóhemíska stemningu. FEJKA gerviplöntur og greinar færa rýminu náttúrulegt yfirbragð og fagurlega fléttaðar körfur í stíl og sjá til þess að ekkert svæði verði út undan.
A rattan TOLKNING room divider against a wall with a KAPPELAND pendant lamp above it and some foliage in front.
A FLÅDIS seagrass basket holding various textiles and a FRIDFULL plant pot on a rug on the floor under a dressing table.

Hagnýt hirsla sem dregur ekki til sín athyglina

Þessi forstofa er ekki aðeins falleg, hún er líka hönnuð til að vera skilvirk og þægileg fyrir alla sem um hana fara. Því má þakka skóhirslunni sem er þó ekki það fyrsta sem þú sérð þar sem hún er haganlega úr augnsýn þegar þú kemur inn. Á sama tíma er hún ein meginástæðan fyrir því að þessi litla forstofa virkar svona vel. Gefðu þér tíma til að skipuleggja hirsluna og hugsaðu um hversu mikið þú getur komið fyrir. Minna er meira í þessu tilfelli og því nauðsynlegt að geyma aðeins skó og yfirhafnir sem eru í notkun hverju sinni og skipta þeim út eftir árstíðum og smekk.

 

Three BISSA shoe cabinets side by side in a cosy hallway with plants in pots on top and a round VARMBLIXT wall lamp above.

A black LINDBYN mirror by an open front door and two BISSA shoe cabinets with various FEJKA artificial potted plants on top.

Augnablik í speglinum

Spegill við útidyrnar gefur þér tækifæri á að sjá spegilmyndina áður en þú heldur út í daginn. Í LINDBYN línunni má finna mjóan spegil sem getur nýst þar sem plássið er lítið. Smáir, mikið notaðir aukahlutir geta átt öruggan stað við hurðina í litlum körfum eins og LURPASSA svo þeir týnist ekki. Þær eru í stíl við náttúrulegt yfirbragð forstofunnar og halda öllu snyrtilegu og samræmdu – og á vísum stað.

 

Skoðaðu spegla

Skoðaðu spegla

Skapaðu áhrifamikla forstofu

Mundu að allt sem er í forstofunni verður hluti af heildarútlitinu, þar á meðal allar yfirhafnir og töskur sem þú geymir þar. Takmarkaðu hvað þú geymir mikið í forstofunni til að koma í veg fyrir að hún virki yfirfull og hafðu yfirbragðið einfalt. Mínimalíski EKRAR fatastandurinn getur verið hjálplegur í því að koma í veg fyrir að yfirhafnir hlaðist upp. Hann tekur ekki mikið pláss, er með hæfilega mikið af snögum til að koma fyrir nokkrum hversdagsyfirhöfnum og herðatrjám – ásamt tösku eða tveimur – en þolir þó ekki óendanlegan fjölda yfirhafna. Þannig verður nægt pláss fyrir allar fallegu skreytingarnar í forstofunni til að njóta sín.

 

A white EKRAR hat and coat stand by a BISSA shoe cabinet holds various items with a round orange VARMBLIXT wall lamp above.

Steldu stílnum