Nútímaleg hönnun á meðalstóru baðherbergi þar sem hlýleg eikaráferð nýtur sín á vaska- og speglaskáp. Frísklegt útlit í bland við notalegt andrúmsloft, sniðuga tækni og nóg af hirslum skapar hið fullkomna baðherbergi fyrir fjöruga fjölskyldu.
Staður fyrir ólíkar venjur
Sumir eru seinir á fætur, aðrir að gera margt í einu og svo eru enn aðrir sem hrærast í óreiðu, hér er baðherbergi sem þjónar ólíkum þörfum. Með þráðlausum hreyfiskynjara slokknar á ljósunum og kviknar þegar þörf er á. Blanda af opnum og lokuðum hirslum geyma handklæði, sápu og snyrtivörur allra meðlima fjölskyldunnar.
Enn snjallara baðherbergi
Þegar öll fjölskyldan deilir baðherbergi er gott að hafa snjallar lausnir sem bæta öryggi og koma í veg fyrir vatnssóun. Með BROGRUND blöndunartæki með skynjara og þráðlausum VALLHORN hreyfiskynjara þarftu aldrei að hafa áhyggjur af því hvort það hafi gleymst að slökkva á ljósum eða skrúfa fyrir
Nútímalegt fjölskyldubaðherbergi þar sem hönnun mætir notagildi
Fjörugt heimili þarf ekki að vera í óreiðu og þetta baðherbergi er gott dæmi um það. Auðvelt í þrifum og vel skipulagt án þess að það komi niður á stílnum, með hlýlegri eikaráferð og í mildum litum. Bættu við smá lit og persónuleika um leið.
Steldu stílnum