Gleðin sem fylgir vorverkunum
Náttúran vaknar til lífsins – og þú um leið. Það er kominn tími til að bretta upp ermarnar og leika sér í moldinni. Litlum blómum er plantað í sígilda leirpotta og LÄCKÖ húsgögn úr dökkgráu járni bjóða þér að slaka á. Skapaðu þinn eigin griðastað í garðinum, byrjaðu í dag!
Taktu garðyrkjuna á næsta stig með eldhúseyju
Ef þú elskar allt sem tengist garðyrkju er GRILLSKÄR eldhúseyja fullkomið borð til að umpotta kryddjurtum og blómum. Hafðu garðáhöldin við höndina í hillunum undir borðinu svo þú getir sinnt græðlingunum á borðplötunni. Þegar plönturnar, pottarnir og fylgihlutirnir eru snyrtilega og fallega skipulögð er auðvelt að hafa gaman og prófa sig áfram. Hvers konar tómata ætlar þú að rækta í ár?
Gríptu með þér litla garðstólinn
Búðu til barnahorn fyrir nestispásur á milli þess sem hlaupið er um garðinn. MAMMUT stóllinn fylgir barninu hvert sem!
Leggðu rækt við draumana
Við getum öll á okkur blómum bætt! Gróðurhúsið býður upp á kjöraðstæður fyrir spírurnar þínar, með plássi fyrir bæði þig og allt grænmetið og blómin. Hvíta, hálfgegnsæja efnið verndar græðlingana þína fyrir skaðlegum sólargeislum og vindi.