Hönnunarráðgjöf fyrir heimili og fyrirtæki

Ertu að hanna rými, skrifstofu, heimili eða verslun? Hönnunarteymið okkar býður upp á faglega ráðgjöf fyrir bæði heimili og atvinnurými af öllum stærðum og gerðum.

 

Við veitum ráðgjöf um:

  • Innréttingar fyrir ný og eldri rými
  • Lýsingu og vefnaðarvöru
  • Betri geymslulausnir og skipulag
  • Heimili með börnum
  • Lítil rými og fjölnota rými
  • Vinnuvistfræði og hljóðvist

Fyrir fyrirtæki

Við bjóðum fyrirtækjum upp á faglega innanhússhönnun. Hvort sem um er að ræða lítið eða stórt atvinnurými hjálpum við þér að skapa umhverfi sem er bæði hagnýtt og aðlaðandi. Með hagkvæmum og vel útfærðum lausnum geturðu nýtt rýmið sem best og skapað vinnuaðstöðu sem styður bæði starfsfólk og rekstur. Bókaðu tíma í dag og sjáðu hvernig góð hönnun getur skipt sköpum fyrir fyrirtækið án mikils tilkostnaðar.

Bóka tíma
 

Verð:

4.990,- fyrir hvert rými eða samkvæmt tilboði

Ráðgjöf:

60-120 mínútna ráðgjöf og ein endurkoma, í allt að 60 mínútur.

Innifalið í þjónustunni:

  • Sérfræðiráðgjöf frá innanhússhönnuði með reynslu af hönnun atvinnurýma
  • Hönnunarráð
  • Innblástur með stemningsmyndum
  • Vörulisti, ein breyting innifalin (viðbótarbreytingar kosta 2.495,- hver) 
  • Verðáætlun
  • Tillögur að valfrjálsri þjónustu, svo sem heimsendingu og samsetningu

Fyrir einstaklinga

Við bjóðum upp á innanhússhönnun fyrir heimili af öllum stærðum og gerðum. Þjónustan er hagkvæm leið til að fríska upp á heimilið eða skapa fallegt og stílhreint umhverfi á nýjum stað. Við bjóðum einnig upp á ókeypis ráðgjöf við hönnun innréttinga, allt frá eldhúsinnréttingum til fataskápa. 

Bóka tíma
 

Verð:

4.990,-  fyrir hvert rými á heimili

Ráðgjöf:

60-120 mínútur og ein endurkoma, í allt að 60 mínútur.

Innifalið í þjónustunni:

  • Sérfræðiráðgjöf frá innanhússhönnuði
  • Hönnunarráð
  • Innblástur með stemningsmyndum
  • Vörulisti, ein breyting innifalin (viðbótarbreytingar kosta 2.495,- hver)
  • Verðáætlun
  • Tillögur að valfrjálsri þjónustu, svo sem heimsendingu og samsetningu

Undirbúningur fyrir hönnunarráðgjöfina

1. Mældu og taktu myndir 

Taktu myndir af rýminu
Myndir hjálpa okkur að kynnast rýminu betur og auðvelda okkur að finna lausnir sem henta þínum þörfum.

Mældu rýmið
Við þurfum upplýsingar um lofthæð, breidd og dýpt þeirra svæða sem þú óskar eftir aðstoð við.

Þarftu hjálp?
Smelltu hér fyrir neðan til að skoða leiðbeiningar sem við höfum útbúið til að aðstoða þig við að taka mál og myndir af rýminu.
 

Hvernig á að mæla og mynda rýmið
Leiðbeiningar um hvernig á að mæla og mynda rýmið fyrir innanhússhönnunarþjónustu IKEA

Opna PDF

2. Segðu okkur frá verkefninu

Hvaða hlutverki á rýmið að gegna?
Hverjir munu nota það? Segðu okkur frá þínum óskum og kröfum svo við getum hannað lausn sem hentar þér.

Fylltu út spurningalistann
Þegar þú bókar tíma geturðu deilt innblæstri og upplýsingum um verkefnið með því að svara stuttum spurningalista.

3. Fáðu innblástur

Hvernig rými höfða mest til þín?
Sýndu okkur hvað veitir þér innblástur og hvaða stíl þú heillast af. Ef þú ert ekki viss um hvaða útlit eða lausnir henta best mun innanhússhönnuðurinn hjálpa þér að finna leið sem passar þínum þörfum.

Safnaðu hugmyndum
Skoðaðu hugmyndir okkar fyrir mismunandi rými til að átta þig betur á því hvaða útlit, stemningu og lausnir þú vilt skapa.