Snyrtilegur kæliskápur í sex einföldum skrefum
Byrjaðu á að þrífa hann vel. Þannig verður auðveldara og skemmtilegra að koma skipulagi á hann.
- Tæmdu kæliskápinn og þrífðu hann að innan
- Ákveddu hvað á að fara hvert
- Raðaðu svipuðum matvörum saman í handhægar hirslur
- Notaðu poka sem er hægt að loka svo maturinn haldist ferskur lengur
- Zip-lock bags keep your food fresh for longer
- Ekki eiga öll matvæli að geymast í kæliskápnum
Skoðaðu aukahluti fyrir þrif
Hentugar hirslur
Gott er að skipuleggja matvælin eftir hitastiginu sem þau þurfa. Neðri hluti kæliskápsins er kaldari – sem er gott fyrir hrátt kjöt og mjólkurvörur. Efri hlutinn hentar betur fyrir krukkur og matarafganga. Raðaðu matvælum saman í stærri kassa – eftir æskilegu hitastigi – til að auðvelda þér þrifin ef eitthvað fer að leka.
Skoðaðu matarílát
Minna óvænt, minni sóun
Glær matarílát auðvelda þér að sjá hvað er í þeim og það dregur úr matarsóun. Matarílátin okkar eru af öllum stærðum og gerðum með lokum í stíl og því er hægt að stafla þeim. Sum má nota öfug og þá er lokið eins og bakki og ílátið hylur matinn.
Sniðugar hirslur fyrir snyrtilegan kæliskáp
Hirslur í kæliskápa eru til úr ólíku hráefni og í ýmsum stærðum. Gott er að hafa nokkrar gerðir og stærðir sem henta ólíkum matvælum.Innsiglaðu ferskleikann
Margnota pokar sem hægt er að loka vel halda grænmeti, hnetum og öðrum mat ferskum í lengri tíma. Þessir eru með tvöfaldri lokun og henta því einnig til að geyma matarafganga eða nesti. Svo ef þú vilt – eða eftir því hvað var í þeim – þá getur þú vaskað þá upp og notað aftur./p>
Skoðaðu matarílát
Inn úr kuldanum
Sum matvæli geymast betur í stofuhita. Notaðu netpoka og fallegar skálar til að geyma grænmeti og ávexti á borð við tómata, avókadó, lauka, kartöflur og banana. Þannig léttir þú á kæliskápnum.
Skoðaðu skálar