Kynntu þér IKEA PS 2026 línuna

IKEA PS 2026 einkennist af notagildi og gleði. Línan snýst um hreyfingu og rúllar, ruggar, bognar og fleira! Þó að vörurnar henti alls staðar þá koma þær sérstaklega vel út (og koma sér sérstaklega vel) í litlu rými.

Kynntu þér IKEA PS 2026 línuna

Skoðaðu allt IKEA PS 2026

Einfalt – en aldrei óspennandi

Umkringdu þig vörum sem koma á óvart og gleðja án þess að flækja málin. Við höfum dregið úr hráefni, einfaldað hönnunina og hámarkað notagildi til að skapa vörulínu sem er einkennandi fyrir IKEA. IKEA PS hefur alltaf snúist um að búa til frábæra skandinavíska hönnun sem á heima á raunverulegum heimilum en við tókum þessa línu skrefi lengra með mottóinu: Minna er meira – en aldrei óspennandi.

„Bekkurinn er göldróttur! Hann brýtur niður veggi og hleypir innra barninu út. Ég hef séð það gerast aftur og aftur – fólk sér bekkinn og getur ekki annað en leikið sér.“

Mikael Axelsson
Designer

Lítið pláss kallar á betri nýtingu

Vörulínan er stútfull af vörum sem nýta fermetrana þína sem best. Sumar bjóða upp á frábært notagildi eins og lampi sem bognar og samanbrjótanlegur svefnstóll. Aðrar skapa hirslupláss, eru afar meðfærilegar eða í úthugsuðum hlutföllum sem spara pláss. Sama hvaða vöru þú velur þá er hún hönnuð til að færa heimilinu þínu gagn og gaman.

„Lampinn er gerður til að handleika – sem fær þig til að leika þér með hann og þannig færa hversdagsleikanum meira líf og gleði.“

Lex Pott
hönnuður

„Ég vildi nota sem minnst hráefni í stólinn og nota þess í stað loft – eitthvað sem er ókeypis fyrir öll.“

Mikael Axelsson
hönnuður


Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X