Svona undirbýrð þú útihúsgögnin þín fyrir sumarið

Útihúsgögnin þurfa að þola alls konar veður en með réttri umhirðu og viðhaldi getur þú haldið þeim ferskum og fallegum og lengt endingartíma þeirra. Í þessum leiðbeiningum, sem eru sérsniðnar að útihúsgögnunum frá okkur, finnur þú hagnýt ráð til að þrífa, verja og geyma útihúsgögnin þín.


Svona hirðir þú um útihúsgögnin

Við bjóðum upp á TRIXIG viðhaldsvörurnar til að hjálpa þér að hirða vel um viðarútihúsgögnin og lengja endingartíma þeirra. Í línunni finnur þú vörur sem geta aðstoðað þig við hin ýmsu verkefni, samsetningu húsgagna, umhirðu og smáviðgerðir hvort sem það er innan- eða utandyra. Notaðu málningarpenslana og glært TRIXIG viðarbæs, til notkunar úti, til að bera á útihúsgögnin og verkfærasettið til að herða á skrúfunum árlega. Það tryggir að húsgögnin haldist falleg, traust og örugg. .

 

Skoðaðu TRIXIG línuna

Skoðaðu TRIXIG línuna

Svona þrífur þú og berð á útihúsgögnin

Öll útihúsgögnin okkar eru formeðhöndluð en akasíuviður, tröllatré og annar gegnheill viður þarfnast viðhalds af og til til að koma í veg fyrir sprungur og til að lengja endingartíma þeirra. Þrífðu viðarhúsgögn með mildri sápulausn og breiddu yfir þau þegar þau eru ekki í notkun. Við mælum með að bera glæra TRIXIG viðarbæsið (sem ætlað er til notkunar úti) aftur á þegar regndropar byrja að smjúga inn í viðinn í stað þess að mynda regndropa á yfirborðinu.

 


Húsgögn sem eru auðveld í umhirðu

Ál, plast, plastreyr og stál eru viðhaldsfrí efni. Gættu þess að halda þeim hreinum með sápuvatni. Settu yfirbreiðslu yfir þau eða komdu þeim fyrir í geymslu á veturna, til dæmis í bílskúr eða kjallara – sérstaklega húsgögn úr plasti og plastreyr sem geta fengið sprungur í miklum kulda.

 

Skoðaðu yfirbreiðslur á útihúsgögn

Skoðaðu yfirbreiðslur á útihúsgögn

Svona hirðir þú um sólhlífar

Haltu sólhlífinni skínandi hreinni með því að þrífa hana vel á hverju ári. Felldu hana saman, fjarlægðu efnið af grindinni og þvoðu það í vél. Fylgdu þvottaleiðbeiningunum. Við mælum einnig með að þú fellir sólhlífina niður þegar hún er ekki í notkun. Þegar þú hirðir vel um sólhlífina þína ver hún þig fyrir sólinni og lífgar upp á garðinn.

 

Skoðaðu sólhlífar og sólhlífastanda

Skoðaðu sólhlífar og sólhlífastanda

Svona hirðir þú um útisessur og -púða

Til að lengja endingu útipúða og sessa er gott að þvo þau reglulega. Komdu þeim fyrir í geymslu þegar þau eru ekki í notkun, helst á svölum og þurrum stað innandyra. TOSTERÖ yfirbreiðsla varðveitir þau vel. Gættu þess að púðarnir séu alveg þurrir áður en þú breiðir yfir þá.

 

Skoðaðu TOSTERÖ línuna

Skoðaðu TOSTERÖ línuna

Hér eru ýmsar vörur sem þú getur notað til að hirða um útihúsgögnin þín

Verndaðu þau fyrir sól, vindi og regni með vatnsheldum yfirbreiðslum á viðráðanlegu verði.