Sama hversu mikla hófsemi þú sýnir þá er alltaf einhver úrgangur, oft matur og umbúðir. Með því að koma upp flokkunarkerfi og skipuleggja kæliskápinn vel getur þú dregið úr sóun - og gert heimilið snyrtilegra um leið.
Fagleg flokkun
Fagleg flokkun Flokkun er auðveldari ef hver flokkur af úrgangi á sér ílát - þannig að minna magn fari í landfyllingar. Hvort sem þú velur frístandandi eða innbyggðar flokkunarlausnir, eins og HÅLLBAR línan, verður heimilið snyrtilegra um leið.
Vissir þú?
Úrgangur er ekki allaf rusl. Grænmetishýðið nýtist í súpur, fræ þrífast í eggjabakka, dagblöð eru skemmtileg sem gjafaumbúðir...
Láttu matinn endast lengur
Gagnsæ matarílát auðvelda þér að sjá hvað þarf að borða fyrst. Til að láta matinn endast lengur getur þú raðað matnum í kæliskápinn eftir hitasvæðum.
Skoðaðu matarílátRuslabanar
Hér eru nokkrar IKEA vörur sem aðstoða þig við að halda utan um og draga úr heimilisúrgangi.
Ekki láta góðan mat fara til spillis
Í stað þess að bæta í matarhauginn sem fer til spillis á hverju ári getur þú fryst afganga og notað þá í fljótlegar máltíðir síðar. Tíma -og peningasparnaður!