Þú getur auðveldlega fært til kassann þar sem þú getur breytt áttinni sem hjólin fjögur snúa í þannig að þau rúlli öll áreynslulaust, hvort sem þú snúir stuttu eða löngu hliðinni fram.
Innbyggð smella heldur lokinu á sínum stað, verndar hlutina þína frá óhreinindum og ryki og gerir þér kleift að stafla tveimur saman.
Þú þarft ekki lengur að leita að hlutunum þínum í geymslunni – gegnsætt plastið gerir þér kleift að sjá innihald kassans og finna það sem þú leitar að.
Hluti af SAMLA línunni þar sem allar stærðir passa saman.
Hentar til að geyma fyrirferðarmikla hluti, íþróttabúnað og garðverkfæri þar sem kassinn er rúmgóður og á hjólum.
Endingargóð hirsla, jafnvel fyrir þungu hlutina.