10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Einstaki blindnaglinn auðveldar samsetningu og festingarnar eru varla sjáanlegar.
Duftlakkað og galvaníserað stál þolir margra ára notkun í blautu og röku umhverfi.
Bæði lokaðar og opnar hirslur á veggnum gera þér kleift að hafa hluti á hillum sem þú vilt geta gripið í og fela aðra hluti sem skapa óreiðu.
Lamirnar eru með innbyggðum dempurum sem hægja á hurðinni og loka henni bæði hljóðlega og mjúklega.
Hvít samsetningin gefur rýminu hreint, bjart og ferskt yfirbragð – eins og karfa með nýþvegnum þvotti.
Fullkomið að festa á vegg, sérstaklega fyrir ofan þvottavélina eða þurrkarann.
Með lokuðum skápum færðu pláss til að skipuleggja þvottaefni og aðra baðherbergishluti.
Nýttu veggplássið undir hirslu og gólfið undir henni fyrir þvottavél og -körfu.