KABOMBA
LED veggljós með spegli,
20 cm, dimmanlegt krómhúðað/glansandi

8.950,-

Magn: - +
KABOMBA
KABOMBA

KABOMBA

8.950,-
Vefverslun: Til á lager
Veggljós í nútímalegum art déco-stíl með spegli sem má fjarlægja og innbyggðri LED ljósaperu sem hægt er að dimma. Gott ljós til að setja á þig farða og dempaðra ljós til að skapa rólegt andrúmsloft, eins og á hótelbaðherbergi.
KABOMBA LED veggljós með spegli

Hótelbragur á baðherberginu

Hótelbragur á baðherberginu

Hvernig líður þér þegar þú stígur inn á baðherbergið þitt? Kannski er það aðeins handhægur staður til að líta í spegil í upphafi dags. Með KABOMBA ljósunum viljum við breyta baðherberginu í eitthvað meira. Með rétt ljós á réttum stöðum verður lýsingin á baðherberginu bæði skilvirk og notaleg – svolítið eins og á hóteli.

Hvernig ættir þú að skipuleggja lýsinguna á baðherberginu? „Baðherbergi geta litið mjög mismunandi út þegar kemur að stærð, stíl og virkni. Besta ráðið er því að blanda saman mismunandi ljósgjöfum,“ segir Anna Granath, sem vinnur með lýsingu hjá IKEA. „Þú þarft almenna lýsingu úr loftinu þegar þú þrífur og mjúka, glampalausa birtu nálægt speglinum til að koma í veg fyrir skuggamyndun á andlitinu.“

Rétt lýsing fyrir andlitið

Þú færð bestu lýsinguna fyrir andlitið með einu ljósi sem beinist að þér á hvorri hlið spegilsins. „Rétthyrnt ljós hentar vel til að dreifa birtunni og er sérstaklega algeng á baðherbergjum. Hönnuðirnir sem bjuggu til KABOMBA, léku sér með formið með því að skipta vegglampanum í þrjá hringi í röð. Það gefur fallega myndrænt yfirbragð.“ Í vörulínunni fæst einnig kringlóttur vegglampi með stækkunarspegli sem hentar vel þegar linsurnar eru settar í eða farði settur á.

Skapaðu rétta andrúmsloftið með lýsingunni

Vegglamparnir eru dimmanlegir svo þú getur auðveldlega stillt birtustigið eftir tíma dags eða því sem þú ert að gera. Lýsing á baðherberginu skiptir ekki aðeins máli upp á virkni heldur þarft þú einnig að geta nýtt hana í að skapa rétta andrúmsloftið og persónulegan stíl. „Við höfum fengið innblástur frá hefðbundnum hótelum og viljum að KABOMBA stuðli að hversdagslegum lúxus. Við vonum að þú getir slakað á og lokað á umheiminn um stund þegar þú kveikir á ljósunum.“

Sjá meira Sjá minna

Eiginleikar

Hótelbragur á baðherberginu

Með góðu skipulagi og réttri lýsingu á réttum stað getur þú fengið bæði hagnýta lýsing og notalegt andrúmsloft á baðherberginu. Þú þarft almenna lýsingu í loftið og mjúka glampafría birtu við spegilinn til að koma í veg fyrir skuggamyndun á andlitinu. KABOMBA línan er innblásin af hefðbundnum hótelum og er ætlað að færa hversdagslífinu smá lúxus. Við vonum að þú getir slakað á og lokað á umheiminn um stund þegar þú kveikir á ljósunum.


Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X