Sjálfbærara efni
BROGRUND
Sturtusett m/hitast. blöndunartæki,
krómhúðað

32.950,-

Energy efficiency class
Magn: - +
BROGRUND
BROGRUND

BROGRUND

32.950,-
Vefverslun: Til á lager
Sturtuhaus og handsturta með mismunandi stillingum. Öruggt með öryggislás sem stilltur er á 38°C og kemur í veg fyrir að vatnið verði of heitt og blöndunartækið sjálft hitnar heldur ekki.
BROGRUND sturtusett m/hitast. blöndunartæki

Kraftmikil sturta fyrir daglegt dekur

Með VOXNAN, BROGRUND og VALLAMOSSE sturtum viljum við hjálpa þér að spara vatn og orku á meðan þú nýtur hlýrrar og notalegrar sturtu. Til að ná því þurftum við að finna út hvernig mætti ná réttu jafnvægi á milli vatnsþrýstingsins í sturtunum og vatnsnotkunar. Hvernig gátum við það? Nú með því að skella okkur í sundfötin og skrúfa frá.

Áður en við komumst svo langt – jafnvel áður en við litum á öll tæknilegu smáatriðin – tókum við viðtöl við fólk alls staðar að um baðherbergin þeirra og sturtuvenjur. Þá sáum við hversu mikilvægar þessar örfáu mínútur eru undir bununni. Sturtuferðin snýst ekki aðeins um þrif heldur einnig að slaka á og losa sig við stress – taka sér augnablik eða til að undirbúa sig fyrir nýjan dag. Þegar þú nuddar svefninn úr augunum í sturtunni hjálpar vatnsflæðið til. Vissir þú að aðeins 3% af öllu vatni á jörðinni er ferskvatn og meiri hluti þess er bundið í klaka? Þar sem takmarkað ferskvatnið er nauðsynleg uppspretta fyrir allt líf verðum við að fara vel með það.

Verkfræði sturtunnar

Hér kemur sturtuúrvalið til sögu. Við vildum einfalda fólki að spara vatn og orku og það tókst okkur með snjallari tækni, hitastýrða blöndunartækinu og sturtuarminum. Antony Smith, sem var hluti af teyminu við framleiðslu á sturtunum, hefur unnið með blöndunartæki og sturtur frá því að hann útskrifaðist úr háskólanum fyrir þó nokkru síðan. Hann lýsir hitastýrðu blöndunartæki sturtunnar sem vél hennar. „Það er blöndunartækið sem tryggir að það er jafnt flæði og rétt hitastig." Antony útskýrir að það er blöndunartækið sem kemur í veg fyrir að hitastigið á vatninu breytist þó einhver skrúfi frá vatni í eldhúsinu. Þú getur haldið áfram að syngja í sturtunni án þess að hafa áhyggjur – og án þess að brenna þig eða fá ískalda gusu yfir þig. Hitastýrða blöndunartækið sem teymið þróaði er einnig með 38°C öryggishnappi og því er eru engar líkur á að þú eða barnið þitt hækkið óvart hitann.

Sturtupróf í sundfötum

Annað lykilatriði við að búa til bæði þægilegar og sjálfbærar sturtur er lítil skinna sem situr í sturtuarminum sem kemur reglu á vatnsflæði. Áskorunin fyrir teymið var að finna rétt jafnvægi á milli vatnsþrýstings og flæðis, þannig að hægt sé að nota minna af vatni án þess að það dragi úr þægindum. Það var aðeins ein leið fyrir teymið að sjá hvort þeim hafði heppnast ætlunarverkið: „Þegar við fórum til birgis í Kína til að prófa fyrstu frumgerðina tókum við með okkur sundfötin," segir Antony brosandi. Hann prófaði mismunandi stillingar á vatnsflæði í sundfötunum sínum. „Það er misjafnt hvernig fólk vill hafa sturturnar sín og við viljum að hægt sé að laga sturturnar að smekk fólks. Að auki getur það notið sturtunnar enn betur þar sem hún sparar bæði vatn og orku."

Sjá meira Sjá minna

Eiginleikar

Örugg og góð sturtuferð sem hægt er að ábyrgjast

IKEA blöndunartæki fyrir sturtu eru með öryggislás sem er stilltur á 38°C, eru köld viðkomu og með þrýstijöfnun sem sparar vatns- og orkunotkun um allt að 30%. Það er tíu ára ábyrgð á blöndunartækjum og þriggja ára ábyrgð á stöngum, sturtubörkum, sturtuhausum og handsturtum. Að auki getur þú valið úr aukahlutum á baðherbergið sem passa við sturtutækin. Í stuttu máli sagt þá getur þú notið góðrar sturtu í baðherbergi í þínum einstaka stíl.

Sjálfbærara líf heima

Þvoðu þér með hreinni samvisku

Allar handsturtur og sturtuhausarnir okkar eru með smáum þrýstijöfnunarbúnaði (PCW) sem dregur úr vatnsflæði en heldur þrýstingi. Þetta er hluti af okkar viðleitni til að varðveita vatn. Við ætlum okkur að verða vatnsvænleg fyrir 2020, sem þýðir að við munum varðveita meira vatn en við notum. Því skiptir hver dropi máli í vatnssparnaði okkar.

Energy and Resources

Vissir þú að með því að nota vatn skynsamlega getur þú lækkað hitaveitureikninginn og tekið þátt í að draga úr loftslagsbreytingum?

Upphitun vatns er allt að 25% af orkunotkun heimilisins á köldum svæðum. Með því að nota vatn á skilvirkan hátt dregur þú úr orkunotkun og um leið kolefnislosun. Leitaðu eftir orkumerkingu og hafðu áhrif á vatnsnotkun þína. Merkingarnar eru litakóðaðar og sýna hversu mikla orku og vatn varan notar. Vörur með grænar merkingar nota minna en rauðmerktar. Nánari upplýsingar er að finna á uwla.eu.

Efni

Hvað er látún?

Látún er blanda af kopar og sinki og hlutföllin fara eftir því hvaða eiginleikum óskað er eftir. Kopar er yfirleitt aðalefnið og því meira af sinki sem þú bætir við hann því sterkari verður hann en einnig verður erfiðara að móta hann og meiri hætta á ryði. . Hægt er að endurvinna látúnið sem slíkt en ekki upprunalegu málmana. Við hjá IKEA notum látún í hnúða, höldur, ramma og blöndunartæki

Samantekt

Kraftmikil sturta fyrir daglegt dekur

Á meðan þú stendur í sturtunni á morgnanna og nuddar þreytuna úr augunum er líklegt að þú takir vatninu sjálfsögðu. Ferskvatn heimsins er þó af skornum skammti og við þurfum að varðveita það. Þess vegna hönnuðum við sturturnar okkar með búnaði sem gerir þér kleift að spara vatn og orku. Galdurinn var að finna rétt jafnvægi á milli vatnskrafts og vantsnotkunar, þannig að þú notir minna vatn án þess að fórna góðri sturtuferð.

Coordination

Allt sem þú þarfnast fyrir frábæra sturtuferð

Við bjóðum upp á gott úrval af öllu sem þú þarft fyrir notalega sturtuferð. Blöndunartæki í sturtur eru ávallt köld viðkomu. Sturtuhausinn og handsturtan eru með ýmsum stillingum og þau eru með þrýstijöfnun sem dregur úr vatns- og orkunotkun um allt að 30%. Þú finnur aukahluti á baðberbergið sem koma skipulagi á brúsa og flöskur og eru í stíl við sturtutækinn. Að auki bjóðum við upp á tíu ára ábyrgð á blöndunartækjum og þriggja ára ábyrgð á stangir, slöngur, sturtuhausa og handsturtur.


Bæta við vörum

Aðrir keyptu líka

Svipaðar vörur

Fleiri vörur úr sömu vörulínu

Vörur sem þú skoðaðir síðast

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X