Sjálfbærara efni
SALJEN
Blöndunartæki,
svart

3.950,-

Energy efficiency class
SALJEN
SALJEN

SALJEN

3.950,-
Vefverslun: Uppselt
Þú sparar heitt vatn og orku í hvert sinn sem þú lyftir handfanginu. Kaldavatnsvirknin kemur í veg fyrir sóun á heitu vatni þegar þú þværð hendur eða burstar tennur.
SALJEN blöndunartæki

Sparaðu vatn á baðherberginu

Í hvert sinn sem þú burstar tennur, þværð hendur, rakar þig eða ferð í bað getur þú gert nokkuð afar mikilvægt - sparað vatn. Þess vegna eru öll blöndunartækin okkar með litlu sigti sem dregur úr vatns- og orkunotkun en heldur sama þrýstingi. Þetta er þó aðeins lítill hluti af stærra verkefni: Að varðveita meira hreint vatn en við notum.

Antony Smith, verkfræðingur frá Englandi, man þegar hann gekk til liðs við IKEA og er hluti af litlu teymi sem þróar vatnskrana og sturtur. „Ég áttaði mig á því að við fylgjum því sem við predikum um sjálfbærni. Það var ánægjuleg áminning, því það þýðir að vinnan okkar skilar sér í sjálfbærni til viðskiptavina,“ segir Antony.

Vatn er verðmætt, ekki sjálfsagður hlutur

Af hverju er mikilvægt að varðveita vatn? Af því að engin lifandi vera lifir af án vatns og ekkert nýtt vatn verður til. Vatn er sífellt endurnýtt en ferskvatnið er ofnýtt, ekki dreift jafnt á milli fólks. Það verður fyrir áhrifum mengunar, spillingar og loftslagsbreytinga. „Þau okkar sem búa þar sem þarf bara að skrúfa frá krananum hugsa mögulega ekki um að spara vatnið, það tekur því sem sjálfsögðum hlut,“ segir Antony.

Hugsað um vatn í hverju skrefi

Bak við tjöldin erum við ávallt að leita leiða til að auka vatnssparnað. Það þýðiur að við útvegum starfsfólki í verksmiðjum okkar og fjölskyldum þeirra hreint drykkjarhæft vatn, tryggjum að vatnið í verksmiðjunni sé hreint áður en við losum það, drögum úr vatnsnotkun við vefnaðarframleiðslu og notum regnvatn til að sturta niður salernum í vöruhúsunum. Nú ætlum við að vinna að nýjum vatnskrönum með nemum og spraututækni, og nýjum sturtum sem nýta vatnið vel. Hver dropi skiptir máli.

Sjá meira Sjá minna

Hugleiðingar hönnuða

Mikael Axelsson, hönnuður

„Þegar við hönnuðum SALJEN blöndunartæki notuðum við sama hágæða vatns- og orkusparandi búnað og fyrir öll okkar blöndunartæki, en úr plasti að utanverðu til að halda kostnaði í lágmarki. Vandinn við plastið er að samskeyti sjást betur. Þess vegna ákváðum við að gera bara meira úr þessum samskeytum. Árangurinn? Flott, hágæða blöndunartæki á óviðjafnanlegu verði!“

Energy and Resources

Vissir þú að með því að nota vatn skynsamlega getur þú lækkað hitaveitureikninginn og tekið þátt í að draga úr loftslagsbreytingum?

Upphitun vatns er allt að 25% af orkunotkun heimilisins á köldum svæðum. Með því að nota vatna á skilvirkan hátt dregur þú úr orkunotkun og um leið kolefnislosun. Leitaðu eftir orkumerkingu og hafðu áhrif á vatnsnotkun þína. Merkingarnar eru litakóðaðar og sýna hversu mikla orku og vatn varan notar. Vörur með grænar merkingar nota minna en rauðmerktar. Nánari upplýsingar er að finna á www.uwla.eu.

Sjálfbærara líf heima

Sparaðu vatnið á baðherberginu

Í hvert sinn sem þú burstar tennur, þværð hendur, rakar þig eða ferð í bað getur þú gert nokkuð afar mikilvægt - sparað vatn. Í blöndunartækjunum okkar er lítið sigti sem dregur úr vatnsnotkun en heldur sama þrýstingi.

Efni

Hvað er ABS-plast?

ABS-plast er sterkt og stöðugt efni með gljáandi yfirborð – og það hentar vel í ýmsa hversdagslega hluti eins og hnífaparaskúffur, eldhúsáhöld, tannburstaglös og snaga á baðherberginu. ABS-plast er unnið úr olíu, sem er óendurnýjanlegt hráefni, en við vinnum stöðugt að framþróun og notum sífellt meira af endurunnu ABS-plasti í vörurnar okkar. ÞAð er mikilvægt skref í átt að markmiði okkar að nota eingöngu plast sem er endurunnið eða unnið úr endurnýjanlegum auðlindum.

Samantekt

People+Planet

Öll blöndunartækin okkar hjálpa þér að spara vatn og sum blöndunartækin eru með kaldavatnsvirkni sem gerir þér einnig kleift að spara orku.


Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X