Sloppurinn umvefur þig með glaðlegum bleikum og rauðum röndum ásamt bláu bandi.
Sloppurinn er úr mjúku bómullarfrotte að utan og innan og því getur þú umvafið þig hlýlegum þægindum eftir baðið eða sturtuna.
Vasarnir eru á hliðinni og enda því ekki framan á maganum þegar þú bindur sloppinn saman. Kemur sér vel til að halda höndunum hlýjum, geyma þurrkur, lykla, síma eða blýant fyrir krossgátuna.
Bandið er þrætt í gegnum lykkjur sem hægt er að stilla, eftir því hvort þú vilt hafa sloppinn bundinn hátt eða lágt.
Kemur vel út með öðrum SKOGSSALLAT vörum.