Þú getur haldið snúrunum til haga með því að leiða þær í gegnum snúrugeymsluna á milli fram- og afturfótanna.
Hentar fyrir örvhenta jafnt sem rétthenta þar sem hægt er að festa sveifina á hvora hliðina sem er.
Yfirborð klætt melamínþynnu er endingargott, blettaþolið og auðvelt að halda hreinu.
Stillanlegir fætur auka stöðugleika skrifborðsins, jafnvel á ójöfnu gólfi.
Þegar þú skiptir reglulega á milli sitjandi og standandi stöðu heldur þú líkamanum á hreyfingu, þér líður betur og getur bætt afköst.
Hillan skapar pláss á skrifborðinu og er góður staður fyrir blöð, liti, bækur eða smáhluti.
Hægt er að stilla hæðina á borðinu úr 65 í 108 cm með sveifinni, til að tryggja vinnuvistfræðilega stöðu – hvort sem það er sitjandi eða standandi.
Standur fyrir síma eða spjaldtölvu sem auðveldar þér að læra, vinna, skoða á netinu eða horfa á bíómyndir án þess að þurfa að halda á tækinu.
Skúffan er kjörinn staður fyrir penna, skrifblokkir og smáhluti sem þarf að hafa við höndina þegar barnið föndrar eða lærir heima. Rennur mjúklega og er með stoppara svo hún haldist á sínum stað.