AFTONSPARV
Mjúkdýr,
10 cm, smágeimvera/grænt

395,-

345,-

Magn: - +
AFTONSPARV
AFTONSPARV

AFTONSPARV

395,-
345,-
Vefverslun: Til á lager
Hugrakkasta geimveran! Þetta mjúkdýr er fullkominn ferðafélagi. Geimveran er nógu lítil til að vera í vasa eða hanga á bakpoka.

Energy and Resources

Er hægt að gera plast vinalegt?

Við viljum draga úr notkun nýrra efna í framleiðslu mjúkdýranna okkar. Ein leið til þess er að nota endurunnið pólýester í fyllinguna og gefa þannig notuðu plasti nýtt líf. Nýju AFTONSPARV leikföngin fara skrefi lengra. Pólýesterefnið sem er í efninu, fyllingunni og þráðunum er allt endurunnið – án þess að það komið niður á öryggi og gæðum.

Hugleiðingar hönnuða

Marta Krupinska, hönnuður

„Þegar ég hanna fyrir börn leyfi ég mínu innra barni að taka völd. Ég fór í ímyndaða geimflaug með hönnunarteyminu mínu og við flugum burt á vit ævintýranna. Fyrir ferðina hittum við áhugasöm börn sem sögðui okkur allt um hvað við gætum fundið á hinum ýmsu stjörnum – og fullvissuðu okkur um að geimverur væru vinalegar. Ég vona að uppgötvanirnar sem við komum með aftur til jarðarinnar muni ná að tengja við ímyndunarafl barna og ítarlega þekkingu þeirra um geiminn.“

Form/Hönnunarferli

Hannað í samráði við börn

Börn eru mikilvægasta fólkið í heiminum og við eru forvitin að heyra hvað þau hafa að segja þar sem við gerum vörur fyrir þau! Þess vegna bjóðum við börnum upp á skapandi og fjörugar vinnustofur þar sem þau fá að taka þátt í vöruþróuninni. Þar geta þau tjáð sig um vörurnar, teiknað og sýnt okkur eða sagt hvað er þeim mikilvægt. Skoðanir barnanna skipta máli og hjálpa okkur að gera vörurnar betri. Þau eru náttúrulega sérfræðingarnir!

Eiginleikar

Mjúkdýr sem taka við öllum knúsum

Við vitum að mjúkdýrin okkar eiga að þola áralanga notkun. Því höfum við valið þægileg efni, saumað augun í og látið þau gangast undir strangar prófanir – ásamt því að tryggja að þau séu laus við öll skaðleg efni. Það er auðvelt að halda þeim hreinum og ferskum því það má þvo þau í vél.

Gæði

Já, þau eru sæt – en eru þau örugg? Algjörlega!

Þú getur verið viss um að allar barnavörurnar okkar standast ströngustu kröfur þegar það kemur að heilsu og öryggi. Við prófum leikföngin okkar vandlega (við erum mikið harðhentari en tveggja ára börn). Bara svo að þú getir haft minni áhyggjur og leikið þér meira.


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X