Öll mjúkdýr eru góð í að knúsa, hughreysta og hlusta og þeim finnst gaman að leika og stríða.
Við vitum að mjúkdýrin okkar eiga að þola mörg ár af ást. Því höfum við valið þægileg efni, saumað augun í og látið þau gangast undir strangar prófanir – ásamt því að tryggja að þau séu laus við öll skaðleg efni.
Úr endurunnu pólýester sem er mjúkt og þægilegt fyrir viðkvæma húð.
Vissir þú að pöndur eru með mjög gott lyktarskyn? Þessi panda finnur kannski ekki mikla lykt en hún er mjög góð í að vita hvenær það er tími til að leika!
Þú vilt hafa vini þína nálægt þegar þú vilt leika. Þess vegna er mjúkdýrið í hentugri stærð sem passar í bakpoka barnsins eða í stóran vasa – og getur fylgt því hvert sem er!