Öll mjúkdýr eru góð í að knúsa, hughreysta og hlusta og þeim finnst gaman að leika og stríða.
Við vitum að mjúkdýrin okkar eiga að þola mörg ár af ást. Því höfum við valið þægileg efni, saumað augun í og látið þau gangast undir strangar prófanir – ásamt því að tryggja að þau séu laus við öll skaðleg efni.
Úr endurunnu pólýester sem er mjúkt og þægilegt fyrir viðkvæma húð.
Þú vilt hafa vini þína nálægt þegar þú vilt leika. Þess vegna er mjúkdýrið í hentugri stærð sem passar í bakpoka barnsins eða í stóran vasa – og getur fylgt því hvert sem er!
Vissir þú að flest ljón eiga heima á sléttunum? Þessi mjúki vinur er með fallegan makka og hjálpar barninu að dreyma um að það sé líka á sléttunni, eða hvar sem ímyndunaraflið fer með það.