Hugleiðingar hönnuða
Marta Krupińska hönnuður
„Teymið vildi búa til klassískan mjúkan bangsa en sagði svo: hvað ef við gerum hann risastóran? Frumgerðirnar voru sannarlega stórar og við fórum að velta fyrir okkur hvernig væri að halda á honum og þvo. Við minnkuðum hann en héldum okkur við hugmyndina um risastóran bangsa sem gæti setið í stofunni. Viðbrögð samstarfsfólks okkar veittu okkur innblástur. Þegar við höldum á böngsum verðum við aftur að börnum og það minnti okkur á eitthvað mikilvægt – við erum bara börn í fullorðinslíkömum.“