995,-/16 stykki
995
Hugleiðingar hönnuða
Sarah Fager, hönnuður
„Ég elskaði að mála þegar ég var unglingur. Það hafði róandi áhrif á mig og lét mér líða vel – ég tel að ungmenni í dag þurfi á svona pásu frá amstri dagsins að halda. Með SOLFÅGEL línunni viljum við í IKEA koma til móts við þessa þörf. Í henni má finna allt frá borðtrönum, sem auðvelt er að taka með sér, til akrýlmálningar og strigablokkar. Hágæðavörur sem hjálpa þeim við að þróa listahæfileika sína og færa þá upp á næsta stig. Það er mér hjartans mál að gera listina aðgengilega fyrir sem flesta.“
Eiginleikar
Fagmannleg áhöld til sköpunar
Fyrir okkur í IKEA er sköpun skemmtileg leið til að kanna heiminn. Því hlustuðum við á ábendingar frá ungu listafólki víðs vegar um heim um að þeim vantaði fagmannlegri tól fyrir listsköpun við hönnun SOLFÅGEL línunnar – vörur sem hvetja til sköpunar og hjálpa til við að þróa hæfileikana. Í línunni má finna akrýlmálningu. tréliti til að teikna og skyggja, strigablokk, pennaveski og pensla auk trönu með litaspjaldi og spaða til að blanda litum.