LÅTSAS línan er hönnuð til að líkjast raunverulegum hlutum. Það gerir leikinn skemmtilegri og raunverulegri þegar börn herma eftir fullorðnum, sem er mikilvægur hluti af því að læra.
Með því að leika með og meðhöndla leikfangamat, eldhúsáhöld og þess háttar þjálfar barnið bæði fínhreyfingar og samhæfingu handa og augna.
Frábær gjöf fyrir börn sem hafa gaman af hlutverkaleikjum eins og að elda, baka eða reka veitingastað.
Passar fullkomlega í hvaða leikfangaeldhús sem er.
Leikföng sem líkjast alvöru eldhúsáhöldum gera leikinn skemmtilegri. Það heyrist meira að segja hringl í salt- og piparstaukunum til að líkja eftir þegar alvöru kokkar krydda matinn.