5.950,-
Gæði
Þægilegur, öruggur staður
Skiptiborðið ætti að vera öruggur staður þar sem þú og barnið þitt getið kynnst hvoru öðru í friði og ró. Þess vegna prófum við öll skiptiborðin okkar til þess að tryggja að þau séu stöðug, endingargóð og þægileg í notkun. Skiptiborðin okkar eru líka með hentugum hirslum sem þýðir að þú getur náð í það sem þig vantar – og ávallt haft aðra höndina á barninu.
Efni
Hvað er gegnheill viður?
Gegnheill viður er uppáhaldshráefnið okkar og hluti af skandinavískri arfleifð okkar. Hann er sígildur og hægt að nota í margt. Viður er endingargóður, fallegur og endurnýjanlegur, óháð tegund. Við leitumst við að nýta þetta hráefni á skynsaman og skilvirkan hátt til að forðast sóun – og við fjárfestum í aðstöðu og flutningum til að við getum aukið notkun á endurunnum við.