EKEDALEN/BERGMUND
Borð og fjórir stólar,
120/180 cm, eikaráferð/Gunnared grátt

93.550,-

Magn: - +
EKEDALEN / BERGMUND
EKEDALEN/BERGMUND

EKEDALEN / BERGMUND

93.550,-
Vefverslun: Er að klárast

Stólfætur úr gegnheilum við sem er slitsterkt náttúrulegt hráefni.

Borðplatan er með spónalagi úr harðvið sem er lakkað til að auka endingu og gera náttúrulegri fegurð eikarinnar hátt undir höfði.

Aukaplatan eru geymd undir borðplötunni og það er jafn auðvelt að setja hana upp til að stækka það og gera pláss fyrir fjóra til sex og setja hana aftur niður þegar gestirnir eru farnir.

Nýjar rannsóknir og ný tækni gera það að verkum að bólstraður stóllinn veitir hámarks þægindi. Breyttu um lit og útlit með því að skipta út áklæðinu hvenær sem þér hentar.

Áklæðið á stólnum er úr beinum pólýestertrefjum með litlum bilum á milli – sem gerir það einstaklega mjúkt með góðri öndun og því heldur það vel sama hitastigi þegar þú situr.

Skálarlaga sætið er aðlagað að líkamsbyggingu sem flestra. Fyllingin er svo aðlöguð fyrir sem mest þægindi með nýrri tækni.

Áklæðið á stólinn er í einu lagi og festist með frönskum rennilás svo auðvelt er að taka það af og setja það aftur á.

Áklæðið má taka af og þvo og því einfalt að halda því hreinu.

EKEDALEN/BERGMUND borð og fjórir stólar

Löng matarboð á þægilega mátann

BERGMUND stóllinn var hannaður til að gera fólki kleift að sitja lengi við matarborðið án þess að fá verk í bak eða fótleggi. Eftir að hafa kynnt okkur nýja rannsókn um mannslíkamann þróuðum við tækni sem gerir okkur kleift að hanna sessu sem veitir sem mest þægindi.

Þótt setstaða virðist ekki mjög virk staða, þá notum við samt allt frá beinum og vöðvum, sinum og brjósks til liðamóta. „Það er mikilvægt að stóllinn styðji við rétta staði líkamans svo þú getir setið lengur á þægilegan hátt,“ útskýrir efnishönnuðurinn Anders Bergner.

Svipuð setbein

Anders og teymið hans kynnti sér nýja rannsókn til þess að hanna lögun sætisins og finna hentugasta hornið milli sætis og baks. Þau komust að ýmsu um mannslíkamann, til dæmis að setbein eru eins í næstum öllu mannfólki. „Það skiptir ekki máli hvort manneskjan er 1,85 m á hæð eða lægri. Skálarlaga undirlag sessunnar passar því fyrir 99% fólks í heiminum.“

Áhersla á meiri þægindi

Pólýesterefnið í sessunni og bakinu samanstendur af fíngerðum trefjum sem liggja lóðrétt og veita mikinn teygjanleika í samanburði við trefjar sem eru í flæktar saman. Anders og teymið þróaði nýstárlega tækni til að auka þægindi sessunnar með því að móta fyllinguna. „Þetta er eins og vöfflujárn. Pólýestertrefjarnar fara inn í sérstakt tæki þar sem þær fá rétta lögun.“ Eftir að hafa varið nokkrum árum í hönnun stólsins vonast Anders að BERGMUND geri fólki kleift að staldra við og slaka á aðeins lengur. „Þegar fólki líður vel er hægt að sitja lengi saman og beina athyglinni að samræðunum.“

Sjá meira Sjá minna

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X