BEKANT
Skrifborð,
120x80 cm, hvítt/svart

30.900,-

14.900,-

BEKANT línan er að hætta í sölu
BEKANT vörurnar hafa verið vinsælar lengi en nú er komið að því að búa til pláss fyrir nýjar og spennandi vörur. Gríptu tækifærið ef þú vilt bæta við samsetninguna sem þú átt nú þegar áður en línan hættir í sölu.

Magn: - +
BEKANT
BEKANT

BEKANT

30.900,-
14.900,-
Vefverslun: Til á lager
Sterkbyggt og endingargott skrifborð sem þolir áralanga notkun. Þú færð mikið vinnupláss og góða lausn fyrir snúrurnar undir borðinu.

Efni

Hvað er spónaplata?

Spónaplata er unnin úr endurunnum við og afgöngum frá sögunarverksmiðjum – þannig verður viður sem ekki er í réttum lit, viðarflísar og sag að auðlind í stað þess að enda mögulega sem rusl. Við notum plöturnar í hluti eins og bókaskápa, rúmgrindur, sófa og eldhússkápa. Til að verja þær fyrir sliti og raka setjum við á þær lakk, viðarspón eða filmu sem bætir útlit húsgagnsins.

Hugleiðingar hönnuða

Hönnun Karl Malmvall og Eva Lilja Löwenhielm

„Þegar við hönnuðum BEKANT línuna þá var markmið okkar að gera breytanlegar borðasamsetningar sem hvetja til samvinnu, funda og sköpunar. Borðin koma í mismun­andi stærðum og lögun, sem þú ­getur notað eitt sér eða blandað þeim saman eins og þér hentar. Og það er auðvelt að bæta við, eða breyta hvenær sem er. Til að stuðla­ að heilsusamlegra vinnuumhverfi, þá er hægt að stilla hæðina á grindunum þannig að hægt sé að sitja og standa við þau eftir þörfum. Þessi vörulína hefur líka verið prófuð og samþykkt til notkunar í atvinnu­skyni, svo að hún er fullkominn í ­allar ­gerðir af skrifstofum.“


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X