Samantekt
Pláss til að vinna, vafra og leika
Í MICKE vörulínunni eru rúmgóð vinnuborð og hirslur - fyrir takmarkað pláss. þær eru allar í sömu hæð og dýpt svo það er auðvelt að nota þær saman. Gerðu þér hagnýta og persónulega samsetningu sem samanstendur af einu eða fleirum vinnuborðum með hólfum fyrir kapla undir borðplötunni og sniðugar áhrifaríkar hirslulausnir. Og þú getur auðvitað breytt samsetningunni þegar þig langar til. Það er bara að velja hluti sem þig vantar - og útbúa lausn fyrir þig og tölvuna þína.
Hugleiðingar hönnuða
Henrik Preutz hönnuður
„Hugmynd mín að MICKE var að einfalda allt sem við kemur tölvum og farsímum í þessari hátækni veröld. Eins og að hafa samband við vini, hala niður bíómyndum og tónlist, vinna eða prenta út aðgöngumiða. Markmiðið var að skapa ekta draumahúsgagn með margnota eiginleikum í lítið pláss. Einn eiginleikinn er innbyggt pláss fyrir snúrur, þar sem þú getur falið þær. Annar er að allir hlutirnir eru með sömu dýpt og hæð þannig að allir geta raðað þeim saman eftir eigin höfði.“