Rúmgóð borðplatan rúmar hversdagslegar athafnir og fjölskyldustundir um helgar – allt frá bíó- og spilakvöldum að snakki og drykkjum.
Borðið er hefðbundið og náttúrulegt með endingargóðri viðarplötu sem dregur fram karakter þess.
Fæturnir mjókka örlítið niður og eru sterklegir og traustir á langhliðinni en örlítið mjórri á styttri hliðunum.
Falleg smáatriði eins og skögun borðplötunnar og skilin á milli fóta og borðplötu færa borðinu handgert yfirbragð.
Einföld og stílhrein hönnunin gerir það að verkum að borðið passar auðveldlega með öðrum húsgögnum og stílum.
Passar fullkomlega með EKTORP, SKRUVBY og HAUGA línunum.