Einföld hönnun með snjöllum eiginleikum – hentar vel til að henda reiður á allt sem þarf í kringum sófann þegar fjölskyldan horfir saman á kvikmynd eða fær gesti.
Tvær hirslur með láréttum lúgum fyrir allt sem þú vilt hafa við höndina en úr augsýn – hvort sem það eru fjarstýringar eða tímarit og bækur.
Þú getur nálgast hirslurnar frá tveimur áttum og hægt er að stilla hversu hratt eða hægt lúgurnar opnast.
Sófaborðið er sterkbyggt og stöðugt, með rúmgóðri borðplötu með háum köntum til að allt haldist á sínum stað.
Borðplata úr svarbrúnum asksspóni með einkennandi viðaráferð færir rýminu hlýlegt og náttúrulegt yfirbragð.
Passar fullkomlega við UPPÅKRA sófa en einnig öðrum sófum eins og KIVIK og SÖDERHAMN.