Fatan er með rúnnuðum hornum fyrir auðveldari þrif.
Það er auðvelt að losa fötuna því hún er með niðurfellanlegu handfangi.
Hringurinn efst á fötunni felur ruslapokann og heldur honum á sínum stað. Hægt er að fjarlægja hann fyrir þrif eða ef hann er ekki notaður.
Loftgötin og lögunin hleypa lofti inn í fötuna sem þurrkar lífrænan úrgang. Það minnkar óæskilega lykt.
Þú getur líka notað föturnar sem hirslu fyrir til dæmis salernispappír eða innkaupapoka.
Lok eru innifalin til að fela úrganginn. Auðvelt er að fjarlægja þau fyrir þrif eða ef þú vilt nota föturnar án loks.
HÅLLBAR föturnar eru hannaðar til að koma til móts við mismunandi flokkunarþarfir. Samsetningin hentar til flokkunar á heimilisúrgangi.
Notaðu meðfylgjandi límmiða til að merkja innihaldið. Teiknaðu eða skrifaðu á límmiðana til að auðvelda flokkunina.
Að minnsta kosti 50% af plastinu í ruslafötunni og lokinu kemur annað hvort úr endurunnum umbúðum eða endurunnu plasti úr heimilistækjum.
Heldur flokkunartunnum á sínum stað í KNIVSHULT skúffum – földum en samt innan seilingar.