25 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Fljótlegt og einfalt að setja saman og taka í sundur.
Dökkur liturinn kemur vel út með dökkum METOD eldhúskápum og skapar fallegt heildarútlit.
Tilvalin hirsla fyrir potta, pönnur og lítil heimilistæki.
Efri hillan er færanleg og þú getur því haft hana í þeirri hæð sem hentar.
Hillurnar eru klæddar melamínþynnu sem rispast síður og auðvelt er að þrífa.
Grindur í kringum hillurnar koma í veg fyrir að hlutir detti af en veita á sama tíma gott aðgengi.
Hillurnar hámarka geymsluplássið í hornskáp og þú nærð auðveldlega í það sem er innst í skápnum.
Hillurnar renna mjúklega út án þess að rekast innan í skápinn.