FREDDE/MATCHSPEL
Tölvuleikjaborð og stóll,
svart

69.900,-

65.900,-

Magn: - +
FREDDE / MATCHSPEL
FREDDE/MATCHSPEL

FREDDE / MATCHSPEL

69.900,-
65.900,-
Vefverslun: Til á lager

Þú getur stillt hallann og læst honum til að laga stólinn að mismunandi líkamsstöðu á meðan þú situr.

Hjólin eru með bremsubúnaði sem heldur stólnum á sínum stað þegar þú stendur upp og losar um hann þegar þú sest niður.

Tölvuleikjaborðið býður upp á einstaklega þægilegt starfsumhverfi þar sem mótuð borðplatan gerir þér kleift að sitja þétt upp að borðinu og styður við úlnliði og framhandleggi.

Hafðu kaffið, gosið eða snarlið við höndina með glasahaldara á annarri hliðinni. Glasahaldarinn er úr plasti sem er samþykkt fyrir matvæli.

Hengdu litlu hillurnar innan eða utan á hliðarþilin eftir hentugleika.

Þú getur komið fyrir 32“ tölvuskjá eða sjónvarpi með því að fjarlægja hilluna fyrir ofan borðplötuna.

Hátt hliðarþil skýlir fyrir sólargeislum og kemur í veg fyrir glýju á tölvuskjánum.

Þú situr þægilega þar sem hægt er að stilla hæð stólsins.

Samverkandi sætis- og bakhalli fylgir hreyfingum líkamans og aðlagar stólinn í rétta stöðu.

Hönnun baksins veitir líkamanum, hálsinum og höfðinu góðan stuðning.

Netefnið í bakinu hleypir lofti í gegnum sig, sem er einstaklega gott þegar leikurinn dregst á langinn.

Þú getur auðveldlega snúið höfuðpúðanum og stillt hæðina svo þú fáir góðan stuðning við hálsinn þegar þú spilar – og þegar þú slakar á milli leikja.

Armarnir fylgja hreyfingum þínum og hægt er að stilla hæð þeirra sem dregur úr álagi á hendur og axlir.

Endingargott áklæðið líkist leðri og auðvelt er að þurrka af því.

Hjólin eru gúmmíklædd og renna því mjúklega á hvaða gólfi sem er.

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X