Það er auðvelt að halda skrifborðinu snyrtilegu með snúruhirslum undir borðplötunni.
Grindin gefur þér nóg pláss til að færa stólinn og fæturna undir borðinu, hvort sem þú situr eða stendur. Tveir snagar fyrir heyrnatól og töskur fylgja með.
Skynjari nemur fyrirstöðu þegar þú hækkar eða lækkar borðið. Þá stoppar það sjálfkrafa og fer til baka um 30-50 mm.
Þú getur setið eða staðið á meðan þú spilar því hægt er að stilla hæð skrifborðsins úr 68 í 125 cm.
Borðið er með þrem hreyfanlegum örmum fyrir flata skjái (hámark 27") og þú getur því fylgst vel með leiknum ásamt því að hafa gott borðpláss!
Meðfylgjandi teygjur, snagar og festingar hjálpa þér að flokka og skipuleggja leikjagræjur og snúrur á töflunni þannig að þú getir auðveldlega gripið það sem þú þarft þegar leikar hefjast.
Hægt er að setja inn tvær stillingar í minnið svo þú getir stillt rafdrifna borðið í þær hæðir sem þú notar oftast á fljótlegan hátt.
Þú getur hlaðið tvö tæki með innbyggðu USB-tengjunum.
Passar með BÄSTBOLL leikjastól sem færir þér enn betri líkamsstöðu þegar þú spilar tölvuleiki.
Viltu að það lýsi af handahófi í rauðu, grænu eða bláu á bak við takkana þegar þú ýtir á þá? Virkjaðu lýsinguna og sjáðu fjarstýringuna lifna við.