10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Þú getur bætt við örmum til að styðja við hendur og axlir.
Hentar til notkunar í atvinnuskyni.
Stóllinn hentar afar vel til vinnu því hann hefur margar stillingar svo hægt sé að aðlaga hann að líkama hvers og eins.
Stuðningur við mjóbak – stuðlar að góðri líkamsstöðu og dregur úr álagi við mjóbak.
Samstilltur halli – hreyfist með þér þegar þú hallar þér aftur, opnar mjaðmir og búk til að bæta blóðrás og orku.
Sjálfvirk mótstaða – stillir mótstöðu baksins eftir líkamsþyngd.
Hæðarstillanlegt sæti – fyrir þægilega setustöðu óháð líkamshæð.
Hægt að þvo – auðvelt er að þrífa stólinn og halda honum ferskum þar sem áklæðin eru laus.
Öryggisbúnaður – hjólin læsast þegar stóllinn er ekki í notkun til að halda honum tryggilega á sínum stað.
Hallalæsing læsir stólnum í uppréttri stöðu.