Efniviðurinn færir náttúruna inn á heimilið og veitir hlýlega og róandi tilfinningu.
IKEA vinnur með félagslegum fyrirtækjum víðs vegar um heim til þess að hanna einstakar vörur og skapa störf fyrir fólk sem þarf mest á því að halda.
Falleg og fjölhæf – getur þjónað ýmsum tilgangi og gert líf þitt þægilegra.
Stór karfa kemur sér vel sem hirsla og skreytir rýmið um leið.
Þessi vara er framleidd af Ramesh Flowers, félagslegu fyrirtæki í Indlandi sem skapar störf í nálægð við heimili kvenna á dreifbýlli stöðum með framleiðslu á vörum úr lífrænum úrgangsefnum.
Fléttuð af færu handverksfólki úr bananatrefjum og því er hver karfa einstök.
Handföngin auðvelda þér að færa hana á milli staða.