5 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Auðvelt að þrífa með því að strjúka af með rökum klút eða svampi, því matarslettur og vökvi brenna ekki á hellunum.
Þú hefur góða stjórn á matreiðslunni því hægt er að tímastilla hverja hellu fyrir sig.
Hraðsuðustillingin (P) gefur hellunni aukaorku. Svona hraðvirkur og mikill hiti hentar til að sjóða vatn og snöggsteikja kjöt og grænmeti.
Snertistjórnborðið gerir þér kleift að stjórna hitanum auðveldlega og nákvæmlega með því að snerta + og - táknin.
Spanhellurnar færa hitann beint í botninn á pönnunni og kólna hratt niður þegar pannan er fjarlægð. Þannig getur þú auðveldlega stýrt hitanum þegar þú eldar og kemur í veg fyrir að matur brenni við pönnuna og hellurnar.
Barnalæsingin kemur í veg fyrir óhöpp að völdum forvitinna fingra.