Brauð- og pizzustilling gera brauðmetið fallega brúnt að utan og pizzubotninn stökkan.
Hurðin er með ljúfloku og skellist því ekki með látum og tryggir á sama tíma að matvælin hristist ekki til.
Enginn aukakostnaður. 5 ára ábyrgðin er innifalin í verðinu! Nánari upplýsingar má finna í ábyrgðarskilmálunum.
Bjóddu vinum og fjölskyldu í gómsæta veislu – stökkar framskar, vorrúllur, kjúklingavængir og steikt grænmeti. Með loftsteikingarstillingunni verður hver máltíð að tilefni til að prófa eitthvað nýtt.
Með loftsteikingarstillingu í ofninum öðlast þú meira pláss í eldhúsinu til að undirbúa matinn og uppvaskið. Auk þess getur þú eldað máltíð fyrir fjóra í einu lagi – á auðveldan hátt.
Grillstillingin færir matvælunum fullkominn gullinn lit, hvort sem það eru stökkir kjúklingavængir, mozzarellaostur eða grillað grænmeti.
Blástursofn dreifir heitu lofti jafnt um allan ofninn sem flýtir fyrir eldun og auðveldar þér að matreiða fleiri rétti í einu. Það getur skipt sköpum fyrir heimilislífið – og baksturinn og ofnsteikinguna.
Dragðu úr ójafnri eldun – með undir- og yfirhita færð þú gullna og stökka áferð á öllum hliðum. Hentar vel fyrir bragðgóðar pizzur og hægeldaða pottrétti.
Hitasundrandi sjálfhreinsibúnaður brennir fitu og matarleifar niður í ösku – sem þú þurrkar svo auðveldlega í burt. Þægilegur tímasparnaður sem heldur ofninum eins og nýjum.
Örbylgjuofn/ofn með blæstri og gufu eldar matvælin utan frá og inn sem gerir kjötið stökt, safaríkt og mjúkt. Bjóddu upp á steikarmáltíð sem bráðnar í munni eða dögurð með mjúku brauði með fullkominni skorpu.
Ert þú í tímaþröng? Með forstilltu eldunarstillingunum getur þú skellt réttinum í ofninn og fundið aukatíma til að leika við börnin, hangið með vinum eða klárað vinnuna – án þess að hafa áhyggjur af matnum.
Þú stjórnar öllum stillingum með snertiskjá. Matreiddu uppáhaldsréttina þína með forstilltum eldunarstillingum eða settu inn tíma, hitastig og eldunarstillingar.
Með aukahlutum sem auka sköpunargleðina í eldhúsinu. Njóttu fullkomins árangurs með hitamælinum, stökkrar áferðarinnar með loftsteikingargrindinni og nýrra eldunaraðferða með ofnskúffunni og -grindinni.
IKEA 700 heimilistækin lyfta eldamennskunni upp á hærri hæðir með fjölbreyttum eiginleikum og stillingum. Ómissandi fyrir upprennandi matreiðslumeistara og fjölskyldur sem elska að fara ótoðnar slóðir í matreiðslunni.
SPJUTBO línan státar af glæsilegum svörtum ramma, reyklitu gleri og sterkbyggðum hnöppum og höldum úr stáli sem færir eldhúsinu nútímalegt og fágað yfirbragð.
Útdraganlegar brautir gefa þér fullkomna yfirsýn þegar þú fylgist með matnum og auðvelda þér að taka úr og setja í ofninn.
Loftsteikingarbakkinn leyfir heitu lofti að streyma óhindrað og eldar matinn vel á öllum hliðum. Hann er svo rúmgóður að þú getur eldað fyrir alla fjölskylduna í einu!
Á ofninum er barnalæsing og sérstaklega hitaeinangrandi hurð fyrir svalara yfirborð, sem fer fram úr kröfum ESB – til að vernda forvitnar hendur.
Til að gera eldamennskuna þægilegri skaltu íhuga að setja ofninn í vinnuhæð. Þá hefur þú góða yfirsýn yfir matinn og það verður auðveldara að setja í og taka úr ofninum.
Paraðu ofninn þinn við örbylgjuofn/ofn með blæstri til að auka möguleikana í eldamennskunni. Bæði upphitun og afþíðing taka stutta stund og örbylgjuofn/ofn með blæstri eykur afkastagetuna í eldhúsinu – fullkomið fyrir stóra skammta og hátíðarmáltíðirnar.