Skynjari mælir magnið af leirtaui í vélinni og hversu óhreint það er og stillir vatnsnotkunina að magninu.
5 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Gefur frá sér lágt hljóðmerki þegar þvottakerfið hefur lokið sér af.
Tímastillirinn gerir þér kleift að stilla vélina allt að 24 klukkustundir fram í tímann og þvo þegar þér hentar.
Uppþvottavélin er með þrjár grindur. Hún rúmar því einstaklega mikið og auðvelt er að raða í hana.
Með rafmagnssaltmæli. Mýkingarefnið gerir kalkríkt vatn að góðu uppþvottavatni og kemur í veg fyrir að kalkið safnist fyrir í vélinni.
Flæðivörn sem skynjar leka og lokar sjálfkrafa fyrir vatnið.
Þegar þvottakerfinu er að ljúka opnast hurðin sjálfkrafa og helst örlítið opin svo að borðbúnaðurinn verði fyrr þurr.
Þú getur stillt hæðina á efri grindinni til að búa til pláss fyrir diska og glös í mismunandi stærðum.
Gaumljós skín á gólfið á meðan uppþvottavélin er í gangi.
Hægt er að fella niður pinnana í neðri grindinni svo þú fáir pláss fyrir stærri hluti.
Uppþvottavél sparar bæði vatn og orku því þegar þú vaskar upp í höndunum notar þú yfirleitt fimm sinnum meira af vatni.