Efni
Hvað er keramik?
Keramik er hitaþolið endingargott efni sem hefur verið notað í nytjahluti í þúsundir ára. Grunnefnið er mismunandi tegundir af leir sem er brenndur í ofni og verður meðal annars að terrakotta, borðbúnaði, leirmunum og postulíni. Við hjá IKEA notum keramik aðallega í blómapotta, postulín, handlaugar og eldhúsvaska. Þar sem hægt er að móta það að vild og glerja með hvaða lit og gljástigi sem er eru möguleikarnir endalausir.