10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Nútímaleg framleiðslutækni ver skúffuna gegn rakaskemmdum. Þynnan liggur lóðrétt á spónaplötunni svo ekkert vatn kemst að óvörðum brúnum.
Eikaráferð með náttúrulegu viðarútliti færir rýminu hlýlegt og afslappað andrúmsloft. Vaskaskápurinn er nútímalegur og stílhreinn með innfelldum höldum.
Veggbrautin sem er innifalin auðveldar þér að festa skápinn á vegg. Festu veggbrautina fyrst á vegginn og settu svo skápana á brautina og festu.
Einstaki blindnaglinn auðveldar samsetningu og festingarnar verða varla sjáanlegar.
Skápurinn er festur upp á vegg. Það léttir á baðherberginu og einfaldar þér að skúra gólfið. Þú getur einnig bætt við fótum.
Hentugur sem vaskaskápur með handlaug eða sem hirsla með borðplötu, án handlaugar.
Bættu við fleiri skápum úr ÄNGSJÖN vörulínunni til að skapa stílhreint baðherbergi sem hentar þínum þörfum.
Skúffan hentar vel fyrir minni hluti eins og bursta, krem, spreybrúsa og aukahluti.
Skúffur með innbyggðum dempurum sem hægja á og loka þeim bæði hljóðlega og mjúklega.
Stór og rúmgóð skúffa fyrir alla hlutina sem þú þarft – lagnirnar liggja fyrir aftan hana en ekki í gegnum útskorið gat. Hægt er að opna skúffuna alveg til að fá góða yfirsýn.