Grár grunnur færir rýminu notalegt og hlýlegt andrúmsloft. Tilvalið ef þú vilt látlausan lit sem passar með öllu. Nútímalegt eða sígilt – þitt er valið.
Einstaki blindnaglinn auðveldar samsetningu og festingarnar eru varla sjáanlegar.
Bættu við ENHET aukahlutum til að nýta hirsluna til hins ýtrasta. Engin þörf á að bora! Seldir sér.
Í þessari stílhreinu samsetningu eru bæði opnar og lokaðar hirslur, tvær handlaugar og tveir speglaskápar sem veita þér þitt eigið pláss til að bursta tennurnar og undirbúa þig fyrir daginn.
Mismunandi tegundir af hirslum eru gagnlegar saman. Vaskaskápur með skúffum færir þér góða yfirsýn yfir smáhluti og opinn skápur með hillum er tilvalinn fyrir körfur og samanbrotin handklæði.