Grár grunnur færir rýminu notalegt og hlýlegt andrúmsloft. Tilvalið ef þú vilt látlausan lit sem passar með öllu. Nútímalegt eða sígilt – þitt er valið.
Einstaki blindnaglinn auðveldar samsetningu og festingarnar eru varla sjáanlegar.
Bættu við ENHET aukahlutum til að nýta hirsluna til hins ýtrasta. Engin þörf á að bora! Seldir sér.
Samsetningin býður upp á ýmsa möguleika – með opnum og lokuðum hirslum sem taka lítið pláss.
Mismunandi tegundir af hirslum eru gagnlegar saman. Vaskaskápur með skúffum færir þér góða yfirsýn yfir smáhluti og hár skápur með hillum er tilvalinn fyrir handklæði og stóra brúsa og flöskur.
Vegghillan er með snúningshillu og snaga fyrir hangandi hluti. Rennihurð úr spegli kemur sér vel í morgunrútínunni og rýmið virðist stærra.