1.950,-/4 stykki
1950
25 ára ábyrgð
Efni
Hvað er ryðfrítt stál?
Þú finnur ryðfrítt stál í allt frá byggingamannvirkjum og bílum til vaska og hnífa. Það er auðvelt að sjá hvers vegna það er notað í svona margt. Ryðfrítt stál er hart og endingargott og tærist lítið – sem sagt ryðgar ekki. Það inniheldur vanalega lítið af nikkeli og í IKEA vörur er aðallega notað nikkelfrítt stál. Eins og með marga aðra málma er hægt að endurvinna það aftur og aftur í nýja slitsterka hluti – án þess að það tapi dýrmætum eiginleikum sínum.
Hvernig á að velja
Sökkull eða sýnilegir fætur
Grunnskápar og háir skápar þurfa að standa á fótum en þú getur valið hvort þeir sjáist eða ekki. Með sýnilegum fótum úr ryðfríu stáli skapast tilfinning fyrir opnu, frístandandi eldhúsi. En ef þú kýst frekar einsleitt útlit getur þú falið þá með sökkli í sama lit og eldhúshurðirnar. Allir fæturnir eru stillanlegir til að tryggja að skáparnir standi stöðugir – jafnvel á ójöfnu undirlagi.