Skáparnir og framhliðarnar eru klædd með melamínþynnu sem rispast síður og auðvelt er að þrífa.
Plasthúðuð borðplatan er endingargóð og auðveld í umhirðu. Með smá alúð helst hún eins og ný í mörg ár.
Dökkgráar framhliðar ásamt borðplötu með hvítu marmaraútliti skapar nútímalegan og notalegan stíl í eldhúsinu.
Skúffa og stillanlegar hillur gera þér kleift að raða vel og vandlega í hirsluna.
Allt sem þú þarft í einni handhægri lausn – hentug í smærri eldhús.
Gott vinnupláss þar sem gert er ráð fyrir vaski og blöndunartæki öðrum megin og eldunarsvæði hinum megin.
Eldhússtörfin eru auðveldari þegar þú nærð í allt sem þú þarft. Veggskápurinn auðveldar þér að nálgast diska og glös.
Þú getur sniðið skápana og skúffurnar að hlutunum þínum með innvolsi sem selt er sér.