Hugleiðingar hönnuða
Francis Cayouette, hönnuður
„Hugmyndin að BRUGDHAJ vörunum kviknaði út frá hefðbundnum sinnepskrukkum og öðrum leirvörum í sveitastíl. Þær eru hugsaðar sem hentug ílát fyrir allt frá þurrmat og kryddum að sósum og áhöldum. Krukkurnar hafa hrátt útlit og áþreifanlega áferð þar sem matt og glansandi yfirborð mætast. Ég vona að fólki þyki þær fallegar og hafi á eldhúsbekknum eða á matarborðinu.“