MÄVINN
Karfa,
22 cm, júta

1.690,-

1690

Magn: - +
MÄVINN
MÄVINN

MÄVINN

1.690,-
Vefverslun: Til á lager
Miðlungsstór karfa fléttuð úr júta: falleg og nytsamleg. Brúnirnar eru með handgerðum útsaumi úr litríku garni. Hentar vel fyrir smáhluti sem þú notar oft og vilt hafa við höndina.

Form/Hönnunarferli

Hannað til að skapa störf

Vörurnar í MÄVINN línunni eru flestar handunnar úr textíl eða náttúrulegum trefjum sem finna má í umhverfinu, þær eru einstakar í útliti og í fallegri litapallettu sem passar vel saman. Framleiðslan er í höndum félagslegra fyrirtækja sem sérhæfa sig í því að skapa störf þar sem þeirra er mest þörf. Nútímaleg hönnunin og hefðbundið handverkið skapa í sameiningu spennandi vörur sem þú getur skoðað og valið þitt uppáhalds, eins og á alvöru handverksmarkaði.

Hugleiðingar hönnuða

P Machado / M Vinka, hönnuðir

„Við vorum í samstarfi við nokkur félagsleg fyrirtæki þegar við hönnuðum MÄVINN línuna þar sem við reyndum að nýta sérstöðu og færni hvers fyrirtækis fyrir sig. Eitt fyrirtæki sérhæfði sig í körfum, annað í ísaumi, pappírsskreytingum eða mottum. Flestar vörurnar eru handgerðar úr textíl og náttúrulegum trefjum sem finnast á svæðinu. Að vera hluti af því að skapa störf og lífsviðurværi fyrir viðkvæma hópa á Indlandi, í Bangladess, Taílandi og Víetnam er frábær tilfinning.“


Svipaðar vörur

Fleiri vörur úr sömu vörulínu

Vörur sem þú skoðaðir síðast