Hugleiðingar hönnuða
Ola Wihlborg, hönnuður
„Þegar ég hannaði NORDLI línuna hafði ég nútímalega skandinavíska hönnun og snjalla virkni í huga. Þetta byrjaði allt saman með rúmi og náttborði en varð svo að heilli vörulínu. Hvert húsgagn getur staðið eitt og sér en passar svo auðvitað með öðru í línunni. Hvert og eitt húsgagn hefur eiginleika sem leggja áherslu á hagnýtni og gæði. Kommóðan er í einingum sem fást í mismunandi stærðum og gerðum og þú getur raðað saman eins og hentar. Sumar einingarnar henta líka vel í önnur rými, eins og stofuna eða ganginn – jafnvel á skrifstofunni.“
Efni
Hvað er spónaplata?
Spónaplata er unnin úr endurunnum við og afgöngum frá sögunarverksmiðjum – þannig verður viður sem ekki er í réttum lit, viðarflísar og sag að auðlind í stað þess að enda mögulega sem rusl. Við notum plöturnar í hluti eins og bókaskápa, rúmgrindur, sófa og eldhússkápa. Til að verja þær fyrir sliti og raka setjum við á þær lakk, viðarspón eða filmu sem bætir útlit húsgagnsins.