Skúffurnar renna mjúklega og eru með skúffustoppurum sem koma í veg fyrir að skúffurnar dragist alveg út.
Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af blettum því auðvelt er að þrífa glerplötuna.
Það er nægt pláss fyrir farða og skartgripina í breiðri, filtfóðraðri skúffunni.
Hægt er að bæta við vegg- eða borðspegli í stærð og stíl sem þér líkar.
Skúffurnar eru með innbyggðum ljúflokum og lokast því hljóðlega og mjúklega.
Stóra skúffan hentar vel til að geyma hluti eins og hárblásara, krullujárn, spreybrúsa og aðra plássfreka hluti.