Hugleiðingar hönnuða
Alexander Pott, hönnuður
„Færanlegi IKEA PS 2026 lampinn er eins og blanda af sívalningi, jólakúlu og petrískál. Alveg frá upphafi þá fannst mér ég vera á réttri leið, bæði hvað varðar notagildi og útlit. Hann er ekki bundinn einum tilgangi eða einum stað. Hvort sem þú ert í góðum félagsskap eða uppi í sófa með bók þá skapar hann notalegan griðarstað. Litirnir eru ýmist áberandi eða hlutlausir. Ég er ánægður með að við lifum á tímum þar sem litir eru velkomnir – þeir gera heiminn svo sannarlega skemmtilegri.“