Hugleiðingar hönnuða
Friso Wiersma, hönnuður
„Ég eyði miklum tíma í að velja efnivið þegar ég hanna og RÖDFLIK gólf-/leslampinn er frábært dæmi um það. Það er augljóst að útlitið er innblásið frá gömlum gljábrenndum iðnaðarljósum. Lakkað yfirborðið er mjög glansandi, rofinn er úr gegnheilu látúni og festingin fyrir stillanlegan skerminn er látúnslituð. Saman skapar þetta gæðatilfinningu – eitthvað sem ég vona að þú upplifir í hvert skipti sem þú kveikir á lampanum og beinir honum að bókinni þinni.“