Hugleiðingar hönnuða
David Wahl, hönnuður
„Ég hef alltaf verið mikill aðdáandi vísindaskáldskapar, sem er kannski augljóst þegar horft er á IKEA PS 2014 loftljósið. Þegar það er lokað kemst dauf birta í gegnum rifurnar og gegnsætt plastið, en þegar þú togar í bandið opnast ljósið og birtan verður meiri. Ljósið er í laginu eins og geimskip en það er auðveldara í samsetningu. Þú smellir hlutunum einfaldlega saman og þá er það tilbúið.“