Hugleiðingar hönnuða
David Wahl, hönnuður
„Ég vildi gera fallegan skerm fyrir loftljós úr birkispón. Útkoman er ÖDLEBLAD, þar sem allir hlutarnir eru eins og minna á sexkant. Þeir mynda síendurtekið mynstur á kúlu sem er 48 cm í þvermáli. Mér líkar hvernig þeir raðast saman – án festinga – og hvernig skermurinn breytir um svip og lýsist upp með mjúku og dempuðu ljósi. Ég vona að þú finnir stað fyrir hann.“